Lifeline HealthLifeline Health

Útgáfa 1.8 — Uppfært 1. nóvember 2026 · English version

Söluskilmálar

Söluskilmálar þessir gilda um kaup einstaklinga (hér eftir „neytandi“ eða „þú“) á þjónustum Lifeline Health ehf. í gegnum lifelinehealth.is og Lifeline snjallforritið. Skilmálarnir bætast við og takmarka ekki almenna notkunarskilmála og persónuverndaryfirlýsingu Lifeline. Komi til ósamræmis gilda söluskilmálar þessir um öll atriði er varða greiðslur, áskrift og endurgreiðslur.

1. Seljandi og rekstrarfyrirkomulag

1.1 Seljandi þjónustanna, eins og rekstrinum er háttað í dag, er:

Lifeline Health ehf. starfar sem heilbrigðisstofnun samkvæmt lögum nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu og er skráð sem slík hjá Embætti landlæknis.

1.2 Lifeline Health ehf. vinnur að stofnun sérstaks dótturfélags sem mun reka heilsuþjálfun og lífsstílsráðgjöf (áskriftarþjónustuna sem lýst er í gr. 3.2) sem sjálfstæða einingu. Tilgangurinn er að halda heilbrigðisstarfsleyfi Lifeline Health skýrt aðgreindu frá þeirri starfsemi sem ekki fellur undir heilbrigðisþjónustu samkvæmt lögum nr. 40/2007. Þar til dótturfélagið hefur starfsemi er Lifeline Health ehf. seljandi þeirrar þjónustu sem talin er í gr. 3. Skilmálum þessum verður breytt með að lágmarki 30 daga fyrirvara þegar dótturfélagið tekur við sölu áskriftarþjónustunnar.

2. Gildissvið og samþykki

Með því að ljúka greiðslu á vefsíðu Lifeline eða innan Lifeline snjallforritsins staðfestir neytandi að hafa lesið, skilið og samþykkt skilmála þessa. Þjónustan er einungis seld einstaklingum 18 ára og eldri sem hafa lögheimili á Íslandi eða innan EES.

3. Þjónustur sem í boði eru

3.1 Heilsumat (stök kaup) — heilbrigðisþjónusta

Heildstætt heilsumat sem felur í sér spurningalista, mælingar og blóðprufu á samstarfsstöð, skýrslu um niðurstöður og læknisviðtal. Heilsuáætlunina býr neytandi til í Lifeline appinu út frá skýrslunni. Heilsumat er heilbrigðisþjónusta í skilningi laga nr. 40/2007 og er veitt af Lifeline Health ehf. samkvæmt starfsleyfi þess félags. Verðlagt sem stök kaup og afhent stafrænt í aðgangi neytanda í snjallforritinu og á vef.

3.2 Áskrift að Lifeline appinu — heilsuþjálfun og lífsstílsráðgjöf

Áframhaldandi aðgangur að persónulegri heilsuþjálfun, daglegri leiðsögn, næringaráætlunum, eftirfylgni og samskiptum við heilsuráðgjafa Lifeline. Áskriftin er í tveimur útgáfum: Lifeline appið (appið eitt og sér) og Lifeline þjálfun (appið ásamt heilsuþjálfa). Lifeline þjálfun felur auk þess í sér skilaboð við heilsuþjálfa og eitt myndsímtal við heilsuþjálfa í hverjum almanaksmánuði, sem er bókað í appinu. Lifeline þjálfun er í boði um allt land. Mæling (blóðþrýstingur og líkamssamsetning) fylgir ekki áskriftinni. Hún er keypt og virkjuð sér í öruggri sjúkraskrá Lifeline (gr. 3.6). Fjöldi innifalinna tíma kemur fram á söluskjá. Áskriftarþjónustan er heilsu- og lífsstílsráðgjöf og er ekki heilbrigðisþjónusta í skilningi laga nr. 40/2007 — hún kemur ekki í stað læknisþjónustu, klínískrar greiningar eða meðferðar. Áskrift er seld í mánaðarlegum tímabilum eins og fram kemur á söluskjá. Eins og fram kemur í gr. 1.2 mun rekstur þessarar þjónustu færast yfir til dótturfélags Lifeline Health þegar það félag tekur til starfa.

Nákvæmt verð, innifaldir eiginleikar og tímabil eru ávallt birt á söluskjá áður en greiðsla er staðfest.

3.3 Prufutími á appinu sem fylgir heilsumati

Heilsumat (gr. 3.1) felur ekki í sér áskrift að Lifeline appinu. Kaupum á heilsumati fylgir hins vegar 14 daga prufutími á appinu (gr. 3.2) án endurgjalds.

Prufutíminn hefst þann dag sem neytandi býr til heilsuáætlun sína í appinu eftir að skýrslan liggur fyrir, en ekki á kaupdegi. Ekki þarf að skrá greiðslukort vegna prufutímans. Honum lýkur sjálfkrafa að 14 dögum liðnum og er neytandi þá ekki krafinn um neina greiðslu. Áskrift hefst einungis ef neytandi velur hana sérstaklega og greiðir fyrir hana.

Prufutími fylgir hverju heilsumati einu sinni, og breyting á áætluninni veitir ekki nýjan prufutíma. Prufutíminn kemur ekki til ef neytandi er með greidda áskrift þegar áætlunin er búin til eða hefur aðgang að appinu samkvæmt samningi við vinnuveitanda. Standi annar prufutími þegar yfir framlengist hann þannig að hann gildi í 14 daga frá þeim degi sem áætlunin er búin til.

Velji neytandi áskrift að appinu á meðan prufutíminn stendur yfir bætast þeir dagar sem eftir eru af prufutímanum við greidda tímabilið. Það hefst þann dag sem prufutímanum hefði lokið, og aðgangur helst óslitinn fram að því. Þetta á einungis við um áskrift að appinu. Áskrift að Lifeline þjálfun, þar sem heilsuþjálfi fylgir neytanda eftir, hefst á greiðsludegi, og þá lýkur prufutímanum.

3.4 Almennur prufutími og lok prufutíma

Neytandi sem hvorki hefur áður haft prufutíma né áskrift getur fengið einn 14 daga prufutíma á appinu án endurgjalds. Hann hefst þegar neytandi lýkur uppsetningu appsins eða býr til eigin áætlun í því. Um greiðslukort, lok prufutímans og kaup á áskrift á meðan hann stendur yfir gildir það sama og í gr. 3.3.

Við lok prufutíma lokast þeir eiginleikar appsins sem fylgja áskrift. Gögnum neytanda er ekki eytt við lok prufutímans. Heilsuáætlun og skráningar eru varðveittar í samræmi við persónuverndaryfirlýsingu Lifeline og verða aftur aðgengilegar í appinu ef neytandi velur áskrift síðar. Neytandi getur áfram skoðað og prentað heilsuáætlun sína án áskriftar. Skýrsla og niðurstöður heilsumats eru áfram aðgengilegar óháð áskrift.

Gildir ekki enn: prufutími með greiðslukorti

Eins og sakir standa er ekki óskað eftir greiðslukorti vegna prufutíma. Verði það tekið upp gildir eftirfarandi: Krefjist prufutími skráningar greiðslukorts kemur það skýrt fram á söluskjá áður en hann hefst, ásamt verði áskriftarinnar og þeim degi sem fyrsta greiðsla fer fram. Lifeline sendir áminningu í tölvupósti þremur dögum áður en prufutímanum lýkur. Segi neytandi upp fyrir lok prufutímans er ekkert innheimt.

3.5 Eftirfylgd eftir 3 mánuði — heilsuþjálfun

Eftirfylgd eftir 3 mánuði er viðbót við heilsumat (gr. 3.1). Hún felur í sér mælingu á þyngd, líkamssamsetningu og blóðþrýstingi, til samanburðar við fyrri mælingar, viðtal við heilsuþjálfa Lifeline um hvernig hefur gengið og uppfærða heilsuáætlun í appinu. Verð hennar er 19.900 kr. með virðisaukaskatti (gr. 4). Á höfuðborgarsvæðinu fær neytandi virkjunarkóða við greiðslu, virkjar hann og mælinguna í öruggri sjúkraskrá Lifeline með rafrænum skilríkjum og fer í mælinguna hjá Lyfju Smáratorgi, án tímabókunar, áður en viðtalið fer fram. Í Vestmannaeyjum fer viðtalið fram á staðnum, á Veru lífsgæðasetri, Hilmisgötu 13, og mælingin fer fram í viðtalinu; heilsuþjálfi skráir niðurstöðurnar í sjúkraskrána. Eftirfylgdin er heilsuþjálfun og lífsstílsráðgjöf en ekki heilbrigðisþjónusta í skilningi laga nr. 40/2007. Viðtal við lækni er ekki hluti af eftirfylgdinni.

3.6 Þjónusta sem keypt er í öruggri sjúkraskrá Lifeline

Stök mæling, blóðprufa og aukaviðtal við lækni eru ekki seld á vef Lifeline eða í appinu. Neytandi kaupir þessa þjónustu, greiðir fyrir hana og virkjar hana í öruggri sjúkraskrá Lifeline, sem opnuð er með rafrænum skilríkjum. Aukaviðtal við lækni bókar neytandi sjálfur í sjúkraskránni, og það fer fram á staðnum, á Veru lífsgæðasetri í Vestmannaeyjum. Þjónustan er heilbrigðisþjónusta (gr. 4). Um verð hennar, greiðslu og afhendingu gilda þær upplýsingar sem birtast við kaupin í sjúkraskránni.

4. Verð, mynt og virðisaukaskattur

Öll verð eru birt í íslenskum krónum (ISK).

Heilbrigðisþjónusta er undanþegin virðisaukaskatti samkvæmt 2. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, og því er enginn VSK lagður á verð hennar. Undir þetta fellur heilsumat og endurmat, svo og öll þjónusta sem keypt er eða veitt í öruggri sjúkraskrá Lifeline: læknisviðtöl, mælingar og blóðprufur. Mæling sem fylgir Eftirfylgd eftir 3 mánuði (gr. 3.5) er hluti hennar og fellur undir 3. mgr.

Áskrift að Lifeline appinu og Lifeline þjálfun (gr. 3.2) og Eftirfylgd eftir 3 mánuði (gr. 3.5), að meðtalinni mælingunni sem henni fylgir, eru heilsuþjálfun en ekki heilbrigðisþjónusta og bera virðisaukaskatt í almennu þrepi, 24%. Birt verð þeirra er með VSK, og á kvittun kemur fram hve hár hluti verðsins er VSK.

Lifeline áskilur sér rétt til að breyta verðlagi. Verðbreytingar gilda ekki um þegar greiddar þjónustur eða yfirstandandi áskriftartímabil. Breytingar á verði áskriftar eru tilkynntar með að lágmarki 30 daga fyrirvara í tölvupósti eða í forritinu áður en þær taka gildi.

5. Greiðslur og greiðslumiðlun

Greiðslur með greiðslukortum (Visa, Mastercard) eru meðhöndlaðar af samstarfsaðila okkar í greiðslumiðlun, Straumur greiðslumiðlun ehf. Lifeline geymir aldrei númer greiðslukorts á eigin þjónum. Sé greiðslukort skráð til síðari greiðslna eru einungis geymdar dulkóðaðar tilvísanir („token“) í það.

Greitt er við kaup. Greiðslutímabil hefst á greiðsludegi eða, sé um áskrift að appinu að ræða, við lok prufutíma sem stendur yfir við kaupin (gr. 3.3). Reikningur er sendur í tölvupósti eftir hverja heppnaða greiðslu og er einnig aðgengilegur í aðgangi neytanda.

6. Áskriftartímabil, endurnýjun og uppsögn

6.1 Áskrift gildir í einn mánuð frá greiðsludegi eða, sé um áskrift að appinu að ræða, frá lokum prufutíma sem stendur yfir þegar hún er keypt (gr. 3.3). Eins og sakir standa endurnýjast áskrift ekki sjálfkrafa og ekkert er innheimt við lok tímabilsins. Lifeline sendir neytanda áminningu áður en tímabilinu lýkur. Vilji neytandi halda áfram þarf að velja áskriftina á ný.

6.2 Gildir ekki enn: sjálfvirk endurnýjun

Sjálfvirk endurnýjun hefur ekki verið tekin upp og þessi málsgrein gildir ekki um neina áskrift eins og er. Verði hún tekin upp á hún einungis við um áskrift sem neytandi stofnar eða staðfestir sérstaklega eftir það, með skráðu greiðslukorti og eftir að það hefur komið skýrt fram á söluskjá. Slík áskrift endurnýjast við lok hvers tímabils á gildandi verði þar til henni er sagt upp. Skuldfært er á það kort sem neytandi hefur valið sem aðalkort og ekki á annað kort í þess stað. Áskrift sem stofnuð var fyrir þann tíma endurnýjast ekki sjálfkrafa.

6.3 Neytandi getur sagt áskrift eða prufutíma upp hvenær sem er án skýringa í gegnum stillingar í forritinu, á lifelinehealth.is/account eða með tölvupósti á contact@lifelinehealth.is. Uppsögn tekur gildi við lok yfirstandandi greidds tímabils eða prufutíma, og aðgangur helst óbreyttur til þess tíma. Hlutfallsleg endurgreiðsla á ónotuðum hluta tímabils er ekki veitt nema lög kveði á um annað.

7. Afhending þjónustu

Stafræn þjónusta hefst um leið og greiðsla er staðfest:

  • Heilsumat (stök kaup): að lokinni greiðslu fær neytandi kóða til að virkja heilsumatið í öruggri sjúkraskrá Lifeline og svarar þar spurningalista. Mælingar fara fram hjá Lyfju Smáratorgi, þar sem neytandi mætir án tímabókunar eftir að kóðinn hefur verið virkjaður, eða á Veru lífsgæðasetri í Vestmannaeyjum, þar sem neytandi bókar tímann sjálfur í öruggri sjúkraskrá Lifeline með rafrænum skilríkjum. Blóðprufa fer fram á samstarfsstöð. Læknisviðtalið bókar neytandi sjálfur í öruggri sjúkraskrá Lifeline með rafrænum skilríkjum, og það fer fram á staðnum, á Veru lífsgæðasetri í Vestmannaeyjum. Þegar skýrslan liggur fyrir býr neytandi til heilsuáætlun sína í appinu.
  • Eftirfylgd eftir 3 mánuði: neytandi bókar viðtal við heilsuþjálfa í aðgangi sínum, eða staðfestir eða breytir tíma sem heilsuþjálfi leggur til; tíminn er bókaður þegar neytandi hefur staðfest hann. Á höfuðborgarsvæðinu fær neytandi virkjunarkóða við greiðslu, eða um leið og hann er tiltækur, virkjar mælinguna í öruggri sjúkraskrá Lifeline og mætir í mælingu hjá Lyfju Smáratorgi, án tímabókunar, fyrir viðtalið. Í Vestmannaeyjum fer viðtalið fram á Veru lífsgæðasetri og mælingin í viðtalinu. Heilsuáætlunin í appinu er uppfærð í kjölfarið.
  • Áskrift: fullur aðgangur að áskriftareiginleikum opnast strax. Áskriftartímabilið hefst á greiðsludegi eða, sé um áskrift að appinu að ræða, við lok prufutíma sem stendur yfir (gr. 3.3).

Breyting og afbókun tíma. Neytandi getur fært eða afbókað bókaðan tíma í aðgangi sínum allt að 24 klukkustundum áður en tíminn hefst, nema annar frestur komi fram í bókunarstaðfestingu. Eftir það skal hafa samband við Lifeline á contact@lifelinehealth.is. Afbókun tíma felur ekki í sér að fallið sé frá kaupum: pöntunin heldur gildi sínu og neytandi getur bókað nýjan tíma. Ekki er innheimt gjald vegna tíma sem ekki er mætt í. Um rétt til að falla frá samningi gildir gr. 8.

8. Réttur til að falla frá samningi (14 daga afturköllunarréttur)

Samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga hefur neytandi að jafnaði 14 daga frest til að falla frá samningi sem gerður er með fjarsölu, án skýringa, frá og með þeim degi sem samningur var gerður.

Mikilvæg undantekning fyrir stafræna heilbrigðisþjónustu: Þar sem þjónustur Lifeline eru afhentar stafrænt strax eftir greiðslu og að beiðni neytanda, þá samþykkir neytandi á söluskjá:

  • að óska eftir því að afhending þjónustunnar hefjist innan 14 daga afturköllunarfrestsins; og
  • að staðfesta að rétturinn til að falla frá samningi falli niður um leið og þjónustan hefur að fullu verið innt af hendi (sbr. d-lið 1. mgr. 18. gr. laga nr. 16/2016).

Í reynd þýðir þetta:

  • Heilsumat (stök kaup): neytandi getur fallið frá samningi án skýringa þar til mat hefur farið fram. Eftir að mat hefur að fullu verið innt af hendi fellur afturköllunarrétturinn niður. Hafi neytandi þegar nýtt sér hluta þjónustunnar áður en fallið er frá samningi ber neytanda að greiða hlutfallslega fyrir þann hluta sem þegar hefur verið afhentur.
  • Áskrift: neytandi getur fallið frá samningi innan 14 daga frá stofnun áskriftar. Hafi áskriftin þegar veitt aðgang að efni er heimilt að draga hlutfallslegan kostnað af endurgreiðslunni samkvæmt 2. mgr. 21. gr. laga nr. 16/2016. Endurnýjun áskriftar stofnar ekki nýjan afturköllunarrétt. Um uppsögn gildir gr. 6.
  • Eftirfylgd eftir 3 mánuði: neytandi getur fallið frá samningi án skýringa þar til mælingin eða viðtalið hefur farið fram. Eftir að eftirfylgdin hefur að fullu verið innt af hendi fellur afturköllunarrétturinn niður.
  • Prufutími: prufutími er án endurgjalds og kemur því ekki til endurgreiðslu vegna hans. Falli neytandi frá kaupum á heilsumati áður en áætlun er búin til fellur prufutíminn sem því fylgir niður. Sé fallið frá kaupunum eftir að áætlunin hefur verið búin til helst prufutíminn óbreyttur.

Til að nýta sér afturköllunarréttinn skal neytandi senda skýra yfirlýsingu þar að lútandi á contact@lifelinehealth.is fyrir lok frestsins. Eyðublað fyrir afturköllun má finna í viðauka I við lög nr. 16/2016.

9. Endurgreiðslur

Endurgreiðslur sem heimilar eru samkvæmt skilmálum þessum eða ófrávíkjanlegum lögum eru lagðar inn á sama greiðslumáta og notaður var við upphaflega greiðslu, eigi síðar en innan 14 daga frá því að beiðni telst gild. Engin umsýslugjöld eru lögð á endurgreiðslur.

10. Mistekist greiðsla og endurnýjun

Ákvæði þetta á einungis við þegar sjálfvirk endurnýjun hefur verið tekin upp (gr. 6.2) og gildir því ekki enn. Mistakist sjálfvirk endurnýjun (t.d. vegna útrunnins korts eða ófullnægjandi innstæðu) reynir Lifeline aftur að innheimta í allt að 7 daga og lætur neytanda vita í tölvupósti. Hafi greiðsla ekki borist innan þess tíma stöðvast aðgangur að áskriftareiginleikum sjálfkrafa. Aðgangur er endurvirkjaður um leið og greiðsla berst.

11. Endurgreiðslukröfur (chargeback) og umdeildar greiðslur

Telji neytandi að greiðsla hafi ranglega verið innheimt er óskað eftir að haft sé samband beint við Lifeline á contact@lifelinehealth.is áður en endurgreiðslukrafa er lögð fram hjá útgáfubanka. Þetta auðveldar skjóta og rétta úrlausn. Lifeline svarar slíkum erindum innan 5 virkra daga.

12. Læknisfræðilegur fyrirvari

Heilsumat (gr. 3.1) er heilbrigðisþjónusta og kemur ekki í stað sambands þíns við heimilislækni eða sérfræðing.

Áskriftarþjónustan (gr. 3.2) er heilsuþjálfun og lífsstílsráðgjöf — ekki heilbrigðisþjónusta. Hún er viðbót við, en ekki staðganga, læknisfræðilega greiningu og meðferð. Innihald áskriftarinnar skal ekki nýtt til að taka klínískar ákvarðanir.

Í neyðartilfellum skal alltaf hringja í 112. Hætta skal eða breyta lyfjameðferð eingöngu í samráði við lækni. Nánari ákvæði um ábyrgðartakmarkanir er að finna í almennum notkunarskilmálum.

13. Persónuvernd

Vinnsla persónuupplýsinga við greiðslu og veitingu þjónustu er framkvæmd í samræmi við persónuverndaryfirlýsingu Lifeline og lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, ásamt reglugerð (ESB) 2016/679 (GDPR). Straumur greiðslumiðlun ehf. starfar sem sjálfstæður ábyrgðaraðili um vinnslu greiðsluupplýsinga.

14. Kvartanir

Kvartanir varðandi greiðslur, þjónustu eða framkvæmd skilmálanna skal senda á contact@lifelinehealth.is. Lifeline svarar formlega innan 14 daga frá móttöku. Náist ekki samkomulag getur neytandi vísað málinu til:

15. Breytingar á skilmálum

Lifeline áskilur sér rétt til að uppfæra skilmálana. Verulegar breytingar verða tilkynntar í tölvupósti eða innan forritsins með að lágmarki 30 daga fyrirvara áður en þær taka gildi. Ávallt gildir nýjasta útgáfa sem birt er á lifelinehealth.is/soluskilmalar.

16. Lögsaga og varnarþing

Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, með fyrirvara um ófrávíkjanleg ákvæði laga til verndar neytendum, þar með talin réttur neytanda til að höfða mál fyrir dómstóli í eigin lögsögu.

17. Tengiliður

Lifeline Health ehf. · kt. 590925-1440 · Langholtsvegi 111, 104 Reykjavík